dans er bara lóðrétt form fyrir láréttar þrár
28.08.2007 11:03:55 / hildur

Nýtt blogg !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 11:47:12 / hildur

pjattpíkuútilega

Þá er pjattpíkuútilegn liðin hjá :cry:... var svo gaman að mig langar bara að fara aftur og aftur. Komumst að þeirri ákvörðun að Eva Dís verður að fara að hætta að selja veðurfræðingunum E. Þeir eru alveg í ruglinu og það rættist ekki neitt sem þeir voru búnir að spá - sem betur fer :D. En allavega, við skelltum okkur ALLA leið í ásbyrgi - ég, íris, snædís og eva dís. Höfðum það mjög næs með fullt af nammi, góðum mat og smá áfengi :klikk: Hulda og Gísli kíktu síðan á okkur á laugardaginn og Hrefna kom og gisti með okkur eina nótt. Vorum orðnar frekar skrautlegar á laugardagskveldið og voru komnar hugmyndir um að hlaupa um naktar með skikkjur...hehe, sem betur fer rættist ekkert úr því - svona fólksins á tjaldstæðinu vegna. Held að nokkur góð augnablik hafi náðst á cameruna hennar írisar samt :lol: Á sunnudeginum var síðan bara dúndur gott veður 8) Skellti mér út þegar ég vaknaði og steiktist eins og fiskur í sólinni:!: Fórum síðan að skoða okkur um og ég mæli alveg með að skella sér í ásbyrgi - frábært útsýni ;)

Það er eins gott að ferðin verði endurtekin að ári liðnu :haha: ...ætli við verðum ekki bara að ákveða helgi núna þannig að við getum örugglega tekið hana frá


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 23:19:46 / hildur

vinna vinna vinna

Þá er maður orðin stúdent ;) 17. Júní var alveg frábært, vaknaði snemma og athöfnin tókst alveg slysalaust fyrir sig. Ég datt sem sagt ekki á hausinn eins og ég var alveg búin að sjá fyrir mér í hausnum á mér 8| Svo var bara veisla og að lokum matur í höllinni sem heppnaðist mjög vel þrátt fyrir að maður var orðin mjöööög þreyttur um kvöldið:S

Svo er ég líka farinn að vinna á nýjum stað eða Hlíð, gengur bara mjög vel held ég... erfitt starf en tíminn er fljótur að líða og mjög fínt starfsfólk :D Er bara búin að vinna og vinna og bíð bara eftir næstu helgi enda er ég þá í fríi föstudag, laugardag og sunnudag :D ætli það verði ekki bara skellt sér í útilegu með kallinum ef veður leifir 8) Vona bara að veðrið verði jafn gott þá og núna um helgina:lol:

Ég er að vinna flestar aðrar helgar en frí síðustu helgina í júlí og er þá planið að skella sér í þá árlegu pjattpíkuútilegu þannig að maður lætur sig nú ekki vanta... en stelpur þið verðið allar að vera í fríi seinustu helgina í ágúst þannig að við getum gert eitthvað allar saman... nema hún hulda verði kannski bara komin upp á fæðingadeild:haha:

sjáumst

Hildur þreytta :P

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 14:27:37 / hildur

lífið og tilveran

Ahh, á að vera að læra... er bara ekki að nenna því! Þjóðhagfræði...piff. Allavega mikið búið að vera um að vera síðustu vikur. Er flutt - loksins! Búin að koma mér vel fyrir og allt. Svo var það að kveðja þennan blessaða skóla með öllu tilheyrandi - dimmisio, kaffi með kennurunum, þrautabraut og læti. Skemmti mér mjög vel á Dimmisio sem ofurhetja - við verum geggjað flott, ekki hægt að finna þrengri og minni búning þótt víða væri leytað :P Svo eru það bara prófin, þarf víst að ná þeim til þess að fá þessa húfu 17. júni. Langar í svona húfu, ekki nóg að maður þurfi að ná öllum þessum prófum á 4 árum heldur þarf maður svo að kaupa hana sjálfur fyrir 7000 kall8|. Að mínu mati ætti skólinn að borga hana fyrir öll þessi erfiði:haha:

Í dag sló ég þó öll met í að ganga langt því ég nennti ekki að læra undir próf... ég fór í messu:!: sem væri allt í lagi þar sem ég er trúuð og svona en málið er að ég fór í kaþólskamessu. Var samt fínt, alveg góð tilbreyting. Var mikið í því að krjúpa, standa sitja - kom alveg í staðinn fyrir morgun leikfimina að mínu mati. En svo var kaffi og kökur á eftir - þar fór brennslan í morgunleikfimini. Var samt mjög fínt voða krúttlegar nunnur og prestur.

En svo er ég búin að bralla ýmislegt annað. Fór á Palla síðustu helgi, bara snilld. Alltaf gaman í Sjallanum þegar Palli er - var samt bara létt maður verður bara að djamma hressilega eftir þessa prófatörn:klikk:  er svo að fara suður næstu helgi að finna útskriftarföt:$ er orðin þvílíkt stessuð - hrædd um að finna ekki neitt:!: 

Held að ég þurfi að fara aftur að læra

gangi ykkur vel sem eruð í prófum í prófunum og ykkur hinum í lífinu:P

Hildur 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 21:19:50 / hildur

Páskarnir eru kannski búnir... en letilífið heldur áfram

 

Málshættir eru mjög skemmtileg fyrirbrigði, eða allavega þegar maður fer að eldast og hefur næstum því þroska í að vera aðeins rólegur þegar kemur að því að borða páskaegg. Ég var þó fremur undrandi þegar ég las málshátt sem leyndis í einu af eggjunum mínum en hann hljómaði svona: Konan er ólokið verk frá skaparans hendi, sem hann hefur ætlað karlmanninum að ljúka við. Ég spyr bara, má þetta???:o Ég náði þó að íta innri feministan mínum til hliðar og njóta páskanna :lol:  borðaði eins og svín af góðum mat og góðgæti en djammið fór þó ekki eins og ætlaðist sem orsakaði mikla gremju hjá einum meðlimi pjattpíkanna... það var samt næs að liggja undir teppi að borða nammi:P

 

Það fer að styttast í fyrstu bústaðarferð pjattpíkanna og ég get bara ekki beðið :haha:  enda alltaf gott að vera í heitum potti í góðra vinahópi með áfengi í hendi:klikk: Úff ég bara trúi ekki að það sé að koma apríl... tíminn líður svo hratt og áður en maður veit af verðum við allar komnar í sitthvora áttina. Eins gott að maður nýti öll tækifæri til að fara í bústað eða bara hittast. Er komin með stóran hnút í magann á tilhugsuninni að kveðja alla:$ Ætla samt að reyna að vera komin aftur til íslands í seinasta lagi fyrir næsta sumar svo við náum sumrinu saman, eða allavega hluta af því. Þýðir samt ekkert að vera að kvarta, bara að njóta þess sem maður hefur :haha:

kveðja

Hildur ráðavillta:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 21:38:53 / hildur

HJÁLP!!!

Ég er ráðavillt, hvað á ég að gera??? :S

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 20:31:15 / hildur

Bréf til mömmu

hæhæ, þar sem ég er nú komin í blogg gírinn ákvað ég að skella hérna inn nýrri færslu. Þannig standa málin að ég er að fara sem au pair og fjölskyldan vildi endilega fá að senda mömmu bréf. Ég sagði þeim að hún skyldi ekki mikla ensku og það þýddi lítið að reyna að senda henni bréf nema í gegnum mig þannig að ég gæti þýtt það fyrir hana. Fjölskyldan var ekki alveg á því að gefast upp og ákvað að láta reyna á ensk-íslenska þýðingarvél á netinu og þetta var útkoman...

Yndi Frú Sif Sigurjónsdóttir , Þakka þú fyrir miðað við lettneska þinn dóttir koma til dvöl með okkur eins og okkar ó per. ÉG skilja þessi þú verða vera áhyggjufullur óður í hvernig hún vilja ráða við hvenær hún er svo langt burt frá heimili. Allur ÉG geta segja er þessi ÉG lofa þú hún vilja vera skemmtun eins og a dýrmætur gamall dóttir eins og this er hvernig ÉG vildi búast við einhver til skemmtun minn dóttir ef hún varúlfur til dvöl með þá. Hún er á leiðinni til til ungfrú þú hræðilega en við hafa webcams hér svo hún ) tala til þú um the webcam sérhver dagur og ofcourse þú vilja vera fleiri en velkominn ef þú vildi eins og til koma til heimsókn hana. Við vildi eins og til bjóða þú til koma yfir með Hildur hvenær hún fyrstur koma í England til dvöl eins og a gestur í okkar heimili fyrir fáeinir sem minnir á gömlu dagana) til hjálpa hana til koma sér fyrir í og svo þú geta sjá þessi hún er hamingjusamur og öruggur. Ef til vill ef þú ert fær til það vildi vera góð kaup hugmynd fyrir þú báðir til koma yfir a vika áður the nýr skóli orð byrjun og svo við ) allur fá til vita hvor annan heilbrigður áður við koma aftur til vinna og the barn koma aftur til skóli. Ef á allir tími Hildur gera út um þessi hún vilja til fara heimili við vilja tryggja þessi hún gets the næstur laus flug. Ef hún er lasinn ÉG vilja snerting þú þegar í stað og láta þú vita og tryggja þessi hún gets the bestur læknisfræðilegur meðhöndlun eins og ÉG vildi fyrir minn eiga barn. Ef þú vilja til tala með mig ÉG vildi vera glaður til heyra frá þú. Hlýja horfa á

Leigh Holmes

Ef einhver er forvitinn um hvað átti að stand þarna þá er bréfið hér á ensku en konan ákvað að senda það einnig á ensku ef einhver hluti bréfsins myndi ekki skiljast:lol:

Dear Mrs Sif Sigurjónsdóttir,

Thank you for considering letting your daughter come to stay with us as our au pair.  I understand that you must be worried about how she will cope when she is so far away from home.  All I can say is that I promise you she will be treated as a precious older daughter as this is how I would expect someone to treat my daughter if she were to stay with them.

She is bound to miss you terribly but we have webcams here so she could talk to you via the webcam every day and ofcourse you will be made more than welcome if you would like to come to visit her.

We would like to invite you to come over with Hildur  when she first arrives in England  to stay as a guest in our home for a few days to help her to settle in and so you can see that she is happy and safe.  Perhaps if you are able to it would be a good idea for you both to come over a week before the new school term starts and so we could all get to know each other well before we return to work and the children return to school.

If at any time Hildur decides that she wants to go home we will make sure that she gets the next available flight.  If she is unwell I will contact you immediately and let you know and make sure that she gets the best medical treatment as I would for my own children.

If you want to speak with me I would be delighted to hear from you.

Warmest regards

Ég get alveg ýmindað mér hversu skrautlegir textarnir sem maður þýddi af bable fish í frönsku voru :P

 

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 11:52:32 / hildur

Halló....aftur

gleðilegt nýtt ár allir ;) hehe ég er ekki alveg búin að vera sú sterkast í bloggheiminum síðustu mánuðu en ákvað að skella einu inn ef svo skemmtilega vildi til að fólk væri ennþá að skoða síðuna

Ég hef tekið þá miklu ákvörðum um hvað ég ætla að gera eftir útskrift. Þann 30. Ágúst mun ég vera í flugvél til Liverpool og ekki snúa aftur fyrr en að ári liðnu 8| Ég er búin að neyða Írisi til þess að koma með mér og vera í nokkra daga og athuga hvort fjölskyldan sem ég er að fara að búa hjá í ár sé ekki örugglega nógu góð fyrir mig, erum að vinna í check listanum eins og stendur ;) Erum einnig farnar að skoða síður af breskum fata verslunum:D ok kannski aðeins og snemmt, viðurkenni það:!:

Stelpur verðum barasta að fara að hittast, ég er búin að gleyma hvernig þið lýtið út við hittumst svo sjaldan8| Út að borða í næstu viku - frábært en ekki nóg fyrir mig

kveðja

Hildur Kröfuharða:klikk:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 14:24:17 / hildur

Djammmenningin á Akureyri... piff

Jæja, er heima hjá mér með flensuna:^) og hef því ekkert betra að gera enn að blogga, ég á svo góðan kærasta að hann ákvað að vera heima hjá mér til þess að “sjá um mig” hehehe:lol:... held að þetta sé besta afsökuninn hans hingað til fyrir að nenna ekki í skólann.
Að öðru: Ég skellti mér í Sjallann um helgina ásamt fríðu föruneyti en hefði alveg eins getað sleppt því, þarna voru einungis gamalmenni og okkur leyst hreinlega ekkert á blikuna 8|að sjá í hvað gamli Sjallinn er að breytast í. Höldum bara í vonina að þetta hafi bara verið einstakt tilfelli þar sem Paparnir voru að halda uppi stemmaranum. Leið okkar lá því næst á 1929, nýja staðinn sem er greinilega vinsælasti staðurinn hjá ungu fólki á Akureyri í dag;). Urðum fyrir miklum vonbrigðum þar því við komumst að því að við ættum meiri samleið með gamlingjunum í Sjallanum heldur en fólkinu á þessum stað:$... ellin er greinilega farin að segja til sín, eða allavega hjá mér og Snæu – sumir voru sko ekki sáttir þegar við ákváðum klukkan hálf þrjú að fara heim að sofa:klikk:.
Annars er svo bara allt búið að vera á fullu í skólanum hjá mér þannig að það er búið að vera ágætt að vera bara að slaka á heima í dag. Veitir ekki af því að undirbúa sig fyrir alla fyrirlestra flóruna sem er að fara að skella á.
Lítill fugl kvíslaði að mér að einhverjar pjattpíkur ætluðu að prófa 1929 aftur næstu helgi:S, veit ekki alveg hvort ég er til í það en mér lýst svoltið vel á á móti sól sem á að vera á laugardaginn – látiði mig vita ef þið eruð að pæla í að kíkka:haha:

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 09:46:17 / hildur

fysta bloggið í laaaaangan tíma!!!

Mér dreymdi skrítinn draum í nótt... draumurinn var þannig að ég sat fyrir framan tölvuna og var að Blogga8|. Alveg augljóst að þetta var draumur þar sem ég var að blogga og það gerist sko ekki í alvörunni. Þegar ég vaknaði ákvað ég því að í dag mundi ég blogga í fyrsta skiptið í laaaaangan tíma.

Í gær átti Izaar afmæli, Til hamingju með það elskan :haha:(úff, veit samt að ég get alveg eins sleppt því að skrifa þetta þar sem ég veit að hann hefur ekki skoðað bloggið mitt allaveg í heilt ár). En hann fylgist þó allavega meira með mér á öðru leyti heldur en fyrir ári, núna veit hann t.d. hvað ég er gömul (klapp, klapp fyrir honum). Við vorum búin að vera hálft ár saman þegar ég varð 18 ára og hann spurði mig hvort ég væri 17 eða 18 ára.:$ Allavega... í tilefni afmæli hans keypt ég tvo æðislega sæta og krúttlega dverg hamstra sem við nefndum dumb og dumber:haha:... lýsir þessum dýrum alveg sérstaklega vel og þá sérstaklega dumber. Þeir eru svo litlir að þeir geta verið saman í hlaupahjólinu, svo hleypur dumb hraðar þannig að dumber dettur alltaf af...hehehehehehe.:P Þið verðið bara að kíkja á þá við tækifæri... eða bara næst þegar við eru að drekka heima.

            Svo eru það Paparnir næstu helgi, veit ekki alveg hvort þeir séu málið en ætla þó að hugsa málið þar sem ég miss af Magna og co þar næstu helgi:cry:. Annars er fínt að slappa bara aðeins og og taka kannski bara spólu eða fara í bíó eða eitthvað. Allavega látið mig vita ef þið hafið eitthvað skemmtilegt í huga, nenni allavega ekki að hanga ein heima.:evil:

            Jæja kannski ég fari að snúa mér aftur að seinni heimsstyrjöldinnim finnst ég samt eiga skilið hrós fyrir þetta blogg, sérstaklega frá þér Eva Dís:!:


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 21:05:16 / hildur

fiðringur???

já ég held að það sé bara komin fiðringur í mann, enda verð ég komin til Búlgaríu eftir 4 daga 8)vona bara að maður verði heill þegar komið verður aftur heim:lol: Hef reyndar heyrt að það sé ekki hægt að versla mikið en ef ég þekki rögnu rétt þá á hún eftir að þefa upp einhverjar fata verslanir. Annars verður örugglega nóg annað að gera:lol: og já það er bannað að gera grína af manni þó er það hvítur að það skín af manni:klikk: annars var ég að kaupa mér brúnkukrem, spurnig hvernig það mun virka:S Planið er nú samt að fara aðeins hægar í drykkjuna heldur en á benidorm og ná kannski að standa í fæturnar mest allt kvöldið:haha: vakna svo það hress daginn eftir að þunna fólkið fær klígju:klikk:

Ég var að komast að því að ég er mest óakveðna manneskja sem til er í heiminum... get bara ekki ákveðið hvað mér langar að gera eftir menntaskóla, veit að það er heilt ár í það en það væri samt gaman að vera komin með einhverju hugmynd um hvar á hnettinum ég verð. Hérna er ég með nokkra kosti og endilega segið mér hvað ykkur lýst best á...

  • Au pair í bandaríkjunum í heilt ár
  • Starfsþjálfun/ensku skóli í bretlandi - bournmouth
  • vera bara heima hjá kallinum og hætta þessari vitleysu

Allir að láta ljós sitt skína og segja skoðun sína... :haha:

nr 5000 fær skot hjá mér ef hann gefur sig framm!!! :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 10:32:42 / hildur

bournmouth...er það málið???

góðann daginn... allir í gúddí fíling:lol: ætlaði bara að láta vita að ég er á lífi:haha: ekki mikið búið að gerast eftir versló samt aðalega bara vinna og sofa...

við stelpunar ákváðum nú samt að skreppa á fiskidaginn mikla í gær:!: entumst ekki lengi en sáum þó flugeldasýninguna, geggjað flott en samt ekkert miðað við flugeldasýninguna um versló. Eva Dís sá svo um að koma okkur í slæman félagsskap og eftir það ætluðum við aldrei að losna við hann... löbbuðum svo rúnthringinn á Dalvík svona 50 sinnum áður en við ákváðum að koma okkur bara heim. á leiðinni í bílinn var svo hrædd úr okkur líftóran8|

í vikunni hefur líka verið mikið um pælingar... ég og íris erum eiginlega að komast að niður stöðu hvert við viljum fara næsta ár, planið er að fara til Bournmouth í málaskóla í 4 vikur og fara svo bara að vinna einhversstaðar í bretlandi, getum þá alveg ráðið hvað við viljum vera lengi og svona... gallinn er bara að það er dáldið dýrt, held ég verði allavega að safna í hálft ár fyrir þessu8| en get samt næstum því lofað ykkur að það verður örugglega þess virði ;)

Endilega segið ykkar skoðun hvað ykkur finnst um það... :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 18:28:34 / hildur

Búdíbúdíbúdí

þá er það verslunarmannahelgayfirlitið... vá langt orð:lol: eftir öll vonbrigðin á föstudeginum og vinnu á laugardeginum skellti ég mér heim til írisar með Evu Dís mína í eftir dragi eftir að hafa gert mig til og keyrt snæau til Huldu, en það var í síðasta skiptið sem ég sá snæu með rænu þetta kvöld:o þegar ég kom til írisar tók ég þá ákvörðun að ég yrði að skella í mig strax slatta af áfengi ef ég ætlaði að falla inn í hópinn og auðvitað var ég ekki lengi að því... var meira að segja farin eða skilja búdíbúdí málýskuna;) ...komst líka að því að það hafði verið skipt á mér og vodkaflösku:S síðan var skellt sér í Sjallann á Sálina, hélt nú bara eitt augnarblik að þetta væru endalokin hjá mér. Það var svo þvílíkur troðningur að ég þurfti helst að vera með fótinn á mér upp í rassgatinu á manneskjunni á undan mér og olnbogann í maganum á manneskjunni á eftir mér:^). Þegar við komumst svo inn þurfti maður að ríghalda í alla ef maður vildi ekki tínast einn einhversstaðar á víðavangi.

Á sunnudaginn var síðan sofið út, djöfull var það gott, síðan var bara legið í leti allan daginn:haha: um kvöldið fórum við síðan niður í bæ og horfðum á þessa glæsilegu flugeldasíningu:lol: held ég hafi bara aldrei séð svona flotta sýningu:!: ég íris og eva dís ætluðum síðan bara rétt að skreppa til írisar þangað til mesta umferðin væri farinn en enduðum þar´til hálf tvö8| í sama félagskap og fyrrakvöldið, þetta kvöld gerðumst ég og eva dís systur, rauði kallinn fór í hárgreiðslu (nei, ekki jólasveinninn) og einn gaur var flugvél í 3 tíma:!:  eftir það rétt skruppum við niðrí bæ og fórum svo bara heim að lúlla. Held ég hafi bara aldrei verið svona óvirk um versló þannig að ég þarf að bæta upp mikið djammleysi í búlgaríu:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.08.2006 10:24:13 / hildur

Versló !!!

jæja veit ekki hvort ég sé að trúa þessu en það er versló, klukkan er 10 um morguninn og ég er komin í vinnuna:!: held að það séu þrjú ár síðan ég var seinast að vinna um versló... gaman að horf á fólk labba vaggandi framhjá:lol: Verð nú samt að viðurkenna að ég var ekkert alltof sátt að vera komin heim klukkan 1 í gær, svona ef þið tókuð ekki eftir því:S hélt að þið væruð að djóka, kannski er ég bara enn svona ung, enda yngst af ykkur:D Vaknaði samt í morgun eldhress og þá fór ég að sætta mig við þetta, ágætt að vera ekki þunnur:)

pæling: afhverju sleppa sér allir svona svakalega um versló sbr. ríðingarnar í hraðbanka... mundi það einhver tímann gerast á einhverjum öðrum tíma þó að þau væru jafn full???

Allavega í kvöld verður sko djammað fram undir morgun... verð þá bara að sætta mig við að vera þunn á morgun og það er eins gott fyrir ykkur stelpur mínar að standa ykkur... vona bara að sálin verði með aðeins fjörugri lög en vanalega, svona í tilefni versló:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 20:37:13 / hildur

frábær útilega :)

held að það sé kominn tími á smá færslu hérna:lol: ég ákvað að taka mér frí fimmtudaginn í seinustu viku og skella mér í vaglaskóg. Vá hvað maður þurfti á þessu að halda. Ég fór sem sagt á miðvikudaginn með izaari. Izaar fór snemma á miðvikudaginn heim að græja sig eftir að við kíktum í heimsókn til snæu í húsasmiðjuna, verð bara að segja að hún er hörku sölukona, held við höfum labbað út með hálfa húsasmiðjuna;) ég var  svo búin að vera heim heilengi að græja allt fara í sturtu og vesenast þegar  ég hringdi í izaar til að athuga hvort hann væri ekki til en þá var hann búin að hanga í tölvunni og varla byrjaður á neinu:^) ræðan sem hann fékk í hádeginu um að hann mundi ekki dirfast að fara í tölvunni hreif hann greinilega ekki :$ lögð síðan af stað þegar hann var búin að græja sig og ég ekki alveg í besta skapinu... var samt fljót að skána í skapinu eftir að við komum í skóginn. Verð bara að segja að það var geggjað grilluðum, fórum í sund á illugastöðum (komumst meira að segja í sundlaugina og allt8| ) og svo auðvitað fórum við í mývatnssveit og heilsuðum upp á Huldu og Gísla... takk fyrir okkur ;) svo og föstudaginn skipti ég um félagskap og snæa og eva dís komu í skóginn, hrefna kom svo á laugardaginn og þetta var æðisleg helgi... skemmtileg lýsing á þeirri útilegu á´pjattpíkusíðunni... takk fyrir helgina stelpur :D

Ég fékk þó alveg að borga fyrir þessa helgi því núna þarf ég að vinna alveg á fullu í 10 - 13 tíma á dag 8| túristarnir eru samt yfirleitt fínir og rólegt að gera þannig að þetta verður ekki erfitt ;) hugga mig við það að vera í fríi um versló

sjokk dagsin: einhver gaur er alltaf að keyra framhjá með unbrake my heart í botni, geggjað svalur;) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6